Hoppa yfir valmynd

Landsáætlun um innleiðingu á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Umfangsmikil vinna hefur staðið yfir við gerð landsáætlunar til að tryggja farsæla innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hér á landi.

Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Landsáætlunin markar tímamót, enda er Ísland nú í fyrsta sinn með heildstæða stefnu í málefnum fatlaðs fólks. Markmiðið er að fatlað fólk geti notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við annað fólk.

Landsáætlunin í heild sinni

Hér getur þú nálgast skjalið í heild sinni: Landsáætlun um innleiðingu á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks. 

Landsáætlun: Auðlesin útgáfa

Miðstöð um auðlesið mál tók saman auðlesna útgáfu af landsáætluninni. Þú getur nálgast hana hér.

Hringferð vegna landsáætlunar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, bauð til opinna samráðsfunda vítt og breitt um landið í tengslum við gerð landsáætlunarinnar.

Landsáætlunin samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti landsáætlunina sem þingsályktunartillögu á Alþingi þann 20. mars 2024.

Myndband um landsáætlunina:

Við tókum saman myndband um landsáætlunina og gerð hennar. Endilega kíktu á það!

Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, ásamt því að efla og vinna að virðingu fyrir mannlegri reisn þess. 

Sjá nánar

Viltu vera á póstlista?

Viltu fylgjast með landsáætluninni? Þú getur skráð þig á póstlista og munt fá fréttir sendar með tölvupósti.

Skrá mig á póstlista

Húsfyllir á samráðsþingi í Hörpu:

 

Afar fjölmennt samráðsþing fór fram í Silfurbergi í Hörpu í febrúar 2023 um landsáætlunina. Að þinginu stóðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp. Þingið var allt saman tekið upp og upptökuna má nálgast hér að ofan.

Skýr framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks

Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður meginverkfæri stjórnvalda í heildstæðri stefnumótun í málaflokki fatlaðs fólks. Áætlunin nær til allra þeirra málasviða sem falla undir samninginn. 

  • Landsáætlunin felur í sér skýra framtíðarsýn, val og skilgreiningu meginmarkmiða sem stefnt skal að og framsetningu aðgerða til að innleiða samninginn. Byggt er á kortlagningu á fjárhagslegri og faglegri stöðu málaflokksins og skoðun kosta í framþróun þjónustunnar.

  • Markmiðin sem skilgreind eru í landsáætlun byggja á greinum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þeim fylgir síðan áætlun um aðgerðir. Framvindan verður metin á árlegu samráðsþingi. 

Verkefnið var unnið í víðtæku samráði og með þátttöku fatlaðs fólks, ráðuneyta, sveitarfélaga, hagsmunasamtaka, einstaklinga og almennings. 


Verkefnastjórn

Staðan í dag, þjónusta við eldra fólk

Verkefnastjórn um gerð landsáætlunarinnar er skipuð 13 manns sem koma úr ráðuneytum, félagasamtökum og frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 

Nánar


 

Unnið saman sem jafningar

Grundvallarhugmyndin í vinnunni við gerð landsáætlunarinnar er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Stefnumótun og gerð landsáætlunar um innleiðingu samningsins er skipt upp í tvo áfanga:

  • Fyrsti áfangi tekur til tímabilsins 2024-2027.
  • Síðari áfangi tekur til tímabilsins 2028-2030.

Stefnumótunin er samþætt við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og myndar þannig eina heild með markmiðum samningsins.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum